Ef þetta hefði verið Landsbankinn...

 bjoggithor

Hér er ein samviskuspurning ofan í lesendur: Ef það hefði verið Landsbanki Björgólfsfeðganna, í stað Glitnis-banka Baugsfeðganna, sem kom "skríðandi" og "á hnjánum" til Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar, í lausafjárvandræðum, hefðu viðbrögð hinna síðarnefndu verið hin sömu, þ.e. að þjóðnýta Landsbankann?

Ekki að ég gleypi umkvartanir Baugsfeðga hráar, langt í frá, en hefðu Björgólfsfeðgar fengið sömu trakteríngarnar? Ég get ekki svarað þessu, auðvitað, en mitt fyrsta svar er: Nei, svo hefði ekki verið. En það er bara sterk tilfinning.

(Meðfylgjandi magnaða mynd fengin að láni frá Fréttablaðinu)


mbl.is Jón Ásgeir: Sagði að þetta yrði feigðarför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru þetta mögulega „trakteringar“ einmitt vegna Björgólfsfeðga.

Í hinni vikunni var uppi orðrómur að ákveðinn annar banki - ekki Kaupþing - væri í vandræðum - eru tengingar og samkrull?

Geir Haarde sagði alþjóð að hann hefði ekki „rætt“ mál Glitnis við Landsbankamenn, en morguninn eftir (þriðjudag) var haft eftir talsmanni feðga að mál tengd Glitni hefðu verið rædd á sunnudagskvöldi.

Á að láta taka af sér mynd farandi frá Stjórnarráðinu, hálf valhoppandi - með hneppt niður eins og Travolta í Grease-myndinni eftir að hafa „skorað“?

Hvað skal halda?

Vinstri-grænn (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 13:36

2 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Mér finnst stórmerkilegt hvað fólk er lafhrætt við að tjá sig (undir nafni alltént) um Landsbankann og Björgólfana. Hvað halda menn að þeir geri ef andað er að þeim smá fýlu - að þeir sendi handrukkara á fólk og hrifsi af fólki innistæður þess í Landsbankanum og þess vegna víðar? Sendi á fólk Rússneska og Litháenska Mafíu?

eehhh... kannski ég segi ekki meir að sinni... Það er verið að banka soldið hressilega á útidyrnar. Ef ég geri ekki vart við mig á næstu, segjum, 60 mínútum, hringið þá í 112.

Friðrik Þór Guðmundsson, 1.10.2008 kl. 14:30

3 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Allt í orden! Þetta voru vissulega Landsbankamenn, en þeir voru voða góðir og buðu mér "vinnu".

Afskaplega eru þetta góðir menn, hjartahlýjir og örlátir, þeir Landsbankamenn. Hún geislar af þeim góðvildin og hugsjónamennskan í þágu lítilmagnans. Mér finnst að það eigi að gefa þeim Glitni, svo sannarlega. Feðgarnir eru svo frábærir að þeir ættu að fá að stjórna landinu.

Friðrik Þór Guðmundsson, 1.10.2008 kl. 14:47

4 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Spurt er: 

Ef það hefði verið Landsbanki Björgólfsfeðganna, í stað Glitnis-banka Baugsfeðganna, sem kom "skríðandi" og "á hnjánum" til Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar, í lausafjárvandræðum, hefðu viðbrögð hinna síðarnefndu verið hin sömu, þ.e. að þjóðnýta Landsbankann?

Svar: Spurningunni verður ekki svarað með jái eða neii vegna orðalags. Ég geri samt ráð fyrir að hefði Landsbankinn orðið uppvís að sama fjársukkinu og verið kominn að því að rúlla, eins og Glitnir, þá hefðu ráðamenn líklega boðið björgun. Hins vegar held ég að stjórnendur Landsbankans hefðu ekki slegið svona á hjálparhöndina enda varla haldnir sama ofsóknaræðinu og sumir.

Emil Örn Kristjánsson, 1.10.2008 kl. 14:58

5 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

"...hefði Landsbankinn orðið uppvís að sama fjársukkinu og verið kominn að því að rúlla, eins og Glitnir"... ?

 En nú skilst mér á yfirlýsingum, meðal annars Davíðs, að Glitnir hafi verið barasta ágætlega rekinn, en bara lent í lausafjárkrísu þegar reglulegir lánveitendur kipptu að sér höndunum. Að reginmunurinn á Glitni og öðrum bönkum hafi fyrst og fremst legið í ónógri innlánaaukningu Glitnis.

Var meira fjármálasukk í Glitni en hinum bönkunum? Veit það ekki, en þakka þér fyrir innleggið Emil Örn.

Friðrik Þór Guðmundsson, 1.10.2008 kl. 17:05

6 identicon

Hefði Lsb. fengið stóran hluta gjaldeyrisforðans að LÁNI?? (burtséð frá áreiðanleika veðsins).

Því miður verð ég að vera sammála þínu fyrsta svari, slík er trú mín á "landsfeðurna".

Bankarnir litu gjaldeyrisforðalánið hýru auga. Kannsi var það hundaheppni að þessi banki gerði fyrstu tilraun til að læsa klóm sínum í það.

sigurvin (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 17:19

7 identicon

Landsbankinn er víst í andaslitrunum segja sumir........

Það er alveg á hreinu að ef  Landsbankinn hefði lent í því sama þá hefði Seðlabankastjóri/banki  lánað þeim, en ekki hirt af þeim bankann.....

Það er skelfileg skítalykt af Glitnis-Jón Ásgeirs-Davíðsmálinu!

Og plús það þá finnst mér yfirlýsing Þorsteins Más trúverðugri en Davíðs!

http://www.visir.is/article/20081001/FRETTIR01/773412390

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 17:30

8 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Það er ekki aldeilis rétt hjá þér, Vansi, að afstaðan í málinu fari eftir stjórnmálaskoðunum. Sjálfsagt vill fólk til vinstri trúa öllu upp á Davíð, en líka upp á auðjöfrana.

Megin átökin í máli þessu eru hins vegar milli Sjálfstæðismanna. Sameiginleg stjórnmálaskoðun þeirra er sjálfstæðisstefnan. Fálkinn er tákn þeirra allra (eða næstum allra). Valhöll er félagsheimili þeirra allra (eða næstum allra). 

Davíð er Sjálfstæðismaður og Jón Ásgeir er Sjálfstæðismaður. Geir er Sjálfstæðismaður og Þorsteinn Már er Sjálfstæðismaður. Jóhannes í Bónus er Sjálfstæðismaður eins og Árni Matt. Eins og Kristján Þór Júlíusson. Eins og Bjarni Ármannsson (hvar er hann eiginlega?) og Lárus Welding.

Afstaða til málsins fer ekki eftir stjórnmálaskoðunum.

Friðrik Þór Guðmundsson, 1.10.2008 kl. 18:40

9 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það er einfalt svar við þessari spurningu. Bæði Geir og Davíð voru víst reglulega í kaffi hjá Björgólfsfeðgum og öfugt, og svo má heldur ekki gleyma Kjartani Gunnarssyni í þessu samhengi :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 1.10.2008 kl. 18:44

10 identicon

Ef og hefði! Hmmm.

Sigfús (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 20:17

11 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

að "fá að ráða, á einn eða annan hátt" er ágætlega boðleg skilgreining.

Friðrik Þór Guðmundsson, 1.10.2008 kl. 22:00

12 identicon

Kvikmyndakarakter sagði "It´s mine - it´s all mine", en gæti það ekki staðið undir myndinni hér að ofan? Verða ekki tvær fréttamyndir íslenskar taldar öðrum meira "lýsandi" þegar fram líða stundir? "Travolta-myndin" og "I'm the driver" sem allir hljóta að þekkja?

Sir Price (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 00:12

13 identicon

Og ætli uppáhaldslag Geirs sé "The Passenger" með Iggy Popp?

http://www.youtube.com/watch?v=QEY6_jcrzI8

Sir Price (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 00:20

14 Smámynd: Sigfús Axfjörð Sigfússon

Menn verða að sklja að þetta átti að verða einkavinavæðing en ekki einkavæðing.

Sigfús Axfjörð Sigfússon, 2.10.2008 kl. 01:04

15 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Sæll

Við umdeilanlegar ákvarðanir er alltaf hætt við að menn telji að illur tilgangur sé við stjórnvölinn.  Hér er um geysilega stórt mál að ræða og fleiri en Davíð sem komu að þessari ákvörðun.  Ég er ekki viss um að hægt sé að bera saman aðstæður Landsbankans og Glitnis, en þú ert væntanlega að segja að EF Lsb væri í sömu skóm og Glitnir var, þá hefði Seðlabankinn brugðist öðru vísi við.  Ég efast um að Geir hafi leyft þessu að snúast upp í eitthvað hefndardæmi og þá hefði þurft að blekkja hann til að þetta yrði eitthvað slíkt.  Það er auðvitað áhyggjuefni hversu viss Jón Ásgeir er á því að þetta hafi verið gert vegna persónulegra ástæðna en aðeins fólk í innsta hring er fært um að dæma um sannleiksgildi þess.   Á meðan maður hefur ekki upplýsingar í höndunum er best að dæma ekki.

Svanur Sigurbjörnsson, 2.10.2008 kl. 12:21

16 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Svanur; þetta var "hypotetísk" spurning og ekkert að því að svara henni "hypótetískt", leggja sinn gildisdóm á út frá þeim upplýsingum (tilefnum) sem liggja fyrir. Það er ekki hægt að "afla upplýsinga" um hvað hefði gerst í tilfelli Landsbankans - um það eru engar upplýsingar til. Hins vegar má hafa skoðun - og hún er þá bara skoðun og ekkert meira.

Friðrik Þór Guðmundsson, 2.10.2008 kl. 13:03

17 identicon

Friðrik Þór þú veist að þú mátt ekki hafa skoðun því þá ertu annað hvort fordómafullur eða rasisti.

Sigurður Pálsson (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband