En eru þetta þá ekki snillingar???

Það er augljóst mál að Eimskip er í vondum málum og að þessi fjárfesting útrásar-snillinganna í Innovate stórbrotið klúður. Fyrirtækið hefur afskrifað eignarhlut í þessu tiltölulega nýkeypta dótturfélagi en bókfært virði eignarhluts telst 74,1 milljónir evra, sem afskrifaður er að fullu.

Þetta gera á genginu í dag um 8.8 milljarðar, ef mér skjöplast ekki. Ég vænti ígrundaðrar fréttaskýringar einhverra eða allra fjölmiðla. Og frétta af því að einhverjir snillingar hafi misst störf sín og bónusa...


mbl.is Eimskip lækkar um 10,47%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Beturvitringur

Hver urðu örlög Longship ltd sem keypt var og átti að blása lífi í, en dó nú samt.

Manstu / vissirðu afleiðingar þessa?  Man eftir kaupunum, barningnum og dauðsfalli en var ekki vakandi yfir áhrifum gengis Stóru systur.

Mikið væri forvitnilegt ef þú vissir meira.  Takk 

Beturvitringur, 11.6.2008 kl. 14:25

2 Smámynd: Beturvitringur

... sem Eimskipi altso keypti (um ' 96?)

Beturvitringur, 11.6.2008 kl. 14:25

3 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Ja, ég get svo sem spurt í kringum mig, en þá er þess að geta að Eimskip 1996 var allt annað en Eimskip í dag. Gamla skipafélagið frá þeim tíma er löngu gufað upp og að mig minnir er Eimskip í dag eiginlega gamla flugfélagið Atlanta að stofni til en með tilfæringum. Það kann reyndar enn að hafa breyst frá því ég skoðaði félagið seinast.

En hvað er tilskrifari með þetta yfirlýsingaglaða nafn að spyrja mig - hélt að þú vissir allt betur?

Friðrik Þór Guðmundsson, 11.6.2008 kl. 15:52

4 identicon

"Maras Linija er rekið af umboðsfyrirtækinu Longship Ltd með aðsetur í Felixtowe í Bretlandi. Longship er alfarið í eigu Eimskips og rekur fyrirtækið einnig skipafélagið Kursiu Linija Ltd. Eimskip er ekki eignaraðili að því. Skip Kursiu Linija sigla á milli Vestur-Evrópu, Litháens og Rússlands.""

MBL Sunnudaginn 26. apríl, 1998 - Sunnudagsblað (viðtal)

_______________________________________________

En .. vandi fyrrum Flugfélagsins Atlanta nú Hf. Eimskipafélags Íslands er ekki einskorðaður við þetta félag ... 

Talið að að heldur sé farið að þiðna í frystigeymslunum út um heiminn..... og hitnað gæti undir nokkrum "bossum" ... og "banka" eða tveimur... 

En nöfnin á þessum félögum þessara "víkinga" .... FL Group (áður flugfélagið Flugleiðir) keypti í fyrra Inspire .. nú í rusli .. og réttnefna væri "Expire"..... og Eimskip (áður flugfélagið Atlanta) .... eitthv. kunnuglegt við þetta?? ... með "Innovate" .... og allt í rusli ...

Baugu með MK One .. og allt í rusli .... 

Ætli "Garðar Hólm" hafi ekki bara verið góður söngvari eftir allt saman

Viðskrifarinn (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 16:21

5 Smámynd: Beturvitringur

Besservisserar (beturvitringar) ÞYKJAST vita allt betur en allir aðrir, en fara iðulega með rangt mál eða vita ekki hót um viðfangið. Ég er slíkur :)   Það er langbest að vera fyrstur til að gera grín að sjálfum sér, fyrirbyggir/minnkar líkurnar á því að aðrir gera það!!! Það VEIT ég þó, hí híhí

Beturvitringur, 11.6.2008 kl. 17:26

6 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Vísir, 11. júní kl. 18:27

Sindri Sindrason, stjórnarformaður Eimskips.

Óskar Hrafn Þorvaldsson skrifar:

"Það er alveg ljóst að stjórnendur Eimskip hafa klúðrað þessu big time," segir Sindri Sindrason, stjórnarformaður Eimskip, um ársgamla fjárfestingu félagsins, Innovate Holdings sem Eimskip afskrifaði á einu bretti í dag með kostnaði upp á 9 milljarða.

Þetta er svar Sindra við spurningu blaðamanns um ábyrgð fyrrum stjórnenda Eimskip, þeirra Magnúsar Þorsteinssonar, fyrrum stjórnarformanns og Baldurs Guðnasonar, fyrrum forstjóra á þessari misheppnuðu fjárfestingu.

Aðspurður um áhrif þessarar gríðarlegu afskriftar segir Sindri að eiginfjárhlutfallið sé komin niður í 16 prósent eftir þetta áfall sem sé algjörlega óásættanlegt.

"Við höfum hins vegar nokkrar leiðir til að koma okkur upp á þann stað sem við þurfum að vera á sem er um 25 til 30 prósent," segir Sindri og nefnir til að mynda kanadíska fyrritækið Versacold þar sem til greina kemur að selja allt að helmingshlut Eimskip í félaginu.

Friðrik Þór Guðmundsson, 11.6.2008 kl. 21:43

7 identicon

Eitt má nefna svona til upprifjunar ....

Fyrir 5 og hálfu ári eða svo var ráðandi minnihluti í Landsbanka Íslands (tæpl. 45%) seldur fyrir  u.þ.b. 10 milljarða.... (þegar búið var að draga frá eitt og annað - hitt og þetta).

Tap fyrrum flugfélags nú skipafélags á "bjálfsháttarkaupum" einum nánast jafnar þá upphæð.

En hvaðan ætli allt þetta "tapfé" hafi komið ?   Frá lífeyrissjóðum á Íslandi?

Viðskrifarinn (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband