Færsluflokkur: Pepsi-deildin
6.2.2009 | 11:31
Ofdekraður auðmaður frá síðustu öld
Það er kannski ástæða til að bjóða Kjartan Gunnarsson fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins velkominn í 21. öldina? Hann segir: Í stjórnmálaumræðum tuttugustu aldarinnar hafði hugtakið hreinsanir ávallt skýra og afmarkaða merkingu sem enginn heiðvirður maður vill láta kenna sig við". Það er rétt að undirstrika við Kjartan að HANS HUGARHEIMUR er ekki lengur við líði.
Ég neita að leyfa helbláum "komma"höturum að eigna sér einkaskilgreiningu á orðinu "hreinsanir" og ætla öðrum að notast við hana og enga aðra.
Orðið "hreinsanir" var vissulega misnotað á 20. öldinni, þegar bæði kommúistar í austri og hægriöfgamenn í vestri stóðu að pólitískum "hreinsunum" - og viðmiðunin var oftar en ekki pólitískur og persónulegur geðþótti.
Þegar í dag er á Íslandi talað um "hreinsanir" í stofnunum er átt við að skipta út óhæfum og vanhæfum einstaklingum, sem eiga stóran hlut í því að hafa komið þjóðinni á kaldan klaka og skellt hafa framtíðarkynslóðum okkar í ömurlegan skuldaklafa. Skipta út mönnum sem ekki njóta trausts og eiga sannarlega að vera gera eitthvað annað. Eiga ekki lengur að starfa fyrir þessa þjóð í ábyrgðarmiklum embættum.
Kjartan Gunnarsson, ofdekraður auðmaður, stjórnarmaður í Landsbanka Björgólfanna, ætti að koma sér í 21. öldina hið bráðasta.
Pólitískar hreinsanir og ofsóknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2009 | 17:51
Bréf til Hönnuh Gurga
Ég var að senda Breska fjármálaráðuneytinu bréf áðan um Landsbankann þeirra Bjögganna með spurningum um Icesave-tryggingarnar. Mér finnst í góðu lagi að bera þetta bréf í ykkur.
Elín borin út úr bankanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2009 | 14:22
Bolti í banka Bjögganna
Þetta eru glæsileg mótmæli; að spila fótbolta í aðalbanka Bjögganna. Meiri svona hugmyndaauðgi, Svartliðar. Ofbeldislaust en áhrifaríkt. Hverjum degi eitthvað ámóta. Tvisvar á dag.
Andóf þarf einmitt að beinast meir en hingað til að táknum útrásarvíkinganna og bankamógúlanna. Þótt stjórnvöld hafi verið glæpsamlega sofandi þá voru það umfram annað "snillingarnir" sem rústuðu landi og þjóð.
Spilið þið fótbolta næst í Hagkaupum - ég skal vera á kantinum.
Vil nota tækifærið og vekja athygli á áhugaverðum umræðum við síðustu færslu mína. Síðasta komment frá sjálfum mér er svona:
Spiluðu knattspyrnu í bankanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Hvað með þetta: Síðsumars var í reykfylltum bakherbergjum búið að ákveða að "borga ekki erlendar skuldir óreiðumanna". Það var Bretunum sagt á fundinum úti í byrjun september. "Við hreinlega getum ekki borgað ef til kerfislægs hruns kemur því við förum á hausinn" Sjokkeraðir Bretar sögðu: Ef þið leggið 200 milljón pund í Icesave dæmið þá tökum við restina á okkur". Við hugsuðum málið en Árni sagði svo NEI við Darling. Þeir urðu óðir og settu á okkur hryðjuverkalög, en við mismunuðum innistæðueigendum eftir þjóðerni og settum neyðarlög.
Svo er spurning hvort fjármagnsflutningar hafi átt sér stað sem við megum ekki fá að vita um....".