Predikun frá prestum frjálshyggjunnar

"Davíð Oddsson hefur lagt trúverðugleika íslensks efnahagslífs í rúst,” segir Richard Portes, prófessor við London Business School í samtali við Viðskiptablaðið en hann telur þjóðnýtingu Glitnis hafa verið mikinn afleik og kallar hana stórslys. Hann segir að “hin fráleitu” ummæli Davíðs Oddssonar um að aðrir bankar kynnu að hljóta sömu örlög, ættu ekki að heyrast frá neinum seðlabankastjóra. „Ég tel að aðgerðir Seðlabankans hafi verið eitt stórslys. Ég vona að forsætisráðherra og ráðgjafar hans munu ekki veita Seðlabankanum mikla athygli í þeirri viðleitni sinni að endurreisa trú á íslenskt efnahagslíf,” segir Portes".

London School of Economics er í miklu uppáhaldi hjá prestum frjálshyggjunnar. Segi ekki meir.


mbl.is Davíð: Seðlabankar segja sjaldan nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi Davíð ? - Búinn að gera margfallt meira en eyðileggja efnahag  allan á Íslandi.  Þessi Davíð er einnig orsök að tugir stórbanka um víða veröld hafa á liðnum dögum farið á hausinn !!

 Fáum mikilmennið og þjóðardýrðlinginn Steingrím J., til að " ganga" þenna Davíð uppi - já, og fleygja úr landi !

 Áfram þjáðir menn !"!

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 20:46

2 identicon

Það hafa ekki allir mikið álit á þessum "hagfræðiprófessor".

BigBrother (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 20:54

3 identicon

Var það ekki Davíð að kenna þetta með glyðrurnar og vandræðin með krítarkortið hans Jóns Ásgeirs úti í Flór-ída um árið  .... þarna á bátnu Thee Viking?

Svo má velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að finna svona hitt og þetta sem dengja má á kauðann fyrst svona vel stendur á.

En ....

Hvers vegna eru Íslendingar í þessari stöðu?

Sumir fengu frelsi .... misnotuðu það .... og skilja eftir sig sviðinn akur.  

Er þetta ekki nokkuð ljóst?

Hvað gerist ef Landsbankinn hefur ekki aura eða Dollara fyrir kúnna á mánudag?

Væri það Davíð að kenna?

Viðskrifarinn (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 21:00

4 Smámynd: Magnús Jónsson

Friðrik. hvenær sagði Davíð að aðrir bankar kynnu að hljóta sömu örlög????

í hvern vitnar þessi prófessor og í hverju er hann prófessor???

ég bara spyr?

Magnús Jónsson, 4.10.2008 kl. 21:38

5 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Afsakaðu svarleysið Magnús, ég var í burtu. En svarleysið heldur þó áfram, þótt í öðru formi sé; ég verð að vísa á Viðskiptablaðið og þann sem skrifaði viðkomandi frétt þar, Þórð Gunnarsson. Ég veit ekki hvar orginal kvótið er að finna.

Það er auðvitað rétt að margt er sagt og ekki endilega allt rétt. Skoðum tvær erlendar fréttir sem snöggvast:

JJB Sports' miserable run continues

By Neil Hume and Bryce Elder

Published: October 4 2008 03:00 | Last updated: October 4 2008 03:00

The miserable run of sportswear retailer JJB Sports

continued yesterday amid concerns about its exposure to the troubled Icelandic banking system.

Its shares finished off 12.7 per cent at 36¼p, taking losses since last Friday's profits warning to 65 per cent. Hallco 1480 Limited, a company half owned by Chris Ronnie, chief executive, bought 28 per cent of JJB in 2007. In a research report, Deutsche Bank observed that these shares were registered in the name of Iceland's Kaupthing bank."We interpret this to mean that some of Ronnie's financing for his interest in JJB came from Kaupthing," Deutsche Bank said.

http://www.ft.com/cms/s/0/68c9c61a-91ae-11dd-b5cd-0000779fd18c.html

Svo þessi:

From Jordan to Iceland

Published: October 4 2008 03:00 | Last updated: October 4 2008 03:00

Jordan is the equity trader's favourite pin-up. Of Standard & Poor's own 52 world market indices, the Hashemite Kingdom is the only one that is still in positive territory this year, albeit by just 1 per cent. Given that investors are $10,500bn poorer than at the start of the year, on a free-float basis, with 40 per cent of that wealth destruction occurring in the last tremulous month alone, that is small consolation. All other emerging markets, the hope of decoupling theorists, have been creamed.

One-time wondermarket India, for example, has lost more than half its value so far this year, with China and Russia not far behind. This year's best performing developed market, the US, is down by almost 20 per cent, while the worst performing, Iceland, has lost 69 per cent of its value. To some, the silicone dunes of Jordan have never looked more alluring.

http://www.ft.com/cms/s/9ad3158c-91ac-11dd-b5cd-0000779fd18c,Authorised=false.html?_i_location=http%3A%2F%2Fwww.ft.com%2Fcms%2Fs%2F1%2F9ad3158c-91ac-11dd-b5cd-0000779fd18c.html&_i_referer=http%3A%2F%2Fsearch.ft.com%2Fsearch%3FqueryText%3DIceland%26x%3D0%26y%3D0%26aje%3Dtrue%26dse%3D%26dsz%3D

Hvað skal segja?

Friðrik Þór Guðmundsson, 5.10.2008 kl. 00:02

6 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Mikið mikilmenni má Davíð vera ef hann er farinn að setja banka úr starfsemi útum allan heim.  Hann er kannski stór - en ekki svo stór.  Krónuna og Davíð með,  þarf hinsvegar að setja í annan stað en Seðlabankann.  Það hefur aldrei haft góðar afleiðingar að stjórna hagkerfi okkar með krónunni og vont bara versnar.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 5.10.2008 kl. 00:20

7 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Seinni greinarnar setti ég ekki inn vegna Davíðs. Þær eru bara fróðleg lesning sem ég rakst á og eru dæmi um að margt sé sagt (eins og ég sagði).

Friðrik Þór Guðmundsson, 5.10.2008 kl. 01:29

8 identicon

London Business School er ekki London School of Economics

Ingólfur (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 09:50

9 Smámynd: Dunni

Læt hér fylgja með nokkrar tengingar úr norsku fjármálapressunni sem staðfesta orð enska prófessorsins.  Ef einhver nennir þá að lesa sögurnar úr Apamusterinu lengur

http://e24.no/makro-og-politikk/article2690963.ece

http://e24.no/utenriks/article2684893.ece

http://arkiv.na24.no/Nyhet/327433/-+Kaupthing+Bank+er+solid.html

Dunni, 5.10.2008 kl. 12:26

10 identicon

Það verður að reka Davíð úr Seðlabankanum strax.
Þessi maður er búinn að eyðileggja framtíð unga fólksins á Íslandi

Ragnar (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 13:19

11 identicon

Af hverju verður að reka Davíð úr Seðlabankanum strax?

Vegna þess að .... ?

Hvern á að ráða í staðinn...?

Af hverju skipti Þorsteinn Már um skoðun á tveimur dögum í síðustu viku og af hverju hefur enginn fréttamaður innt hann eftir því hvers vegna þetta hafi gerst?

Hvað var sagt við Þorstein Má? .... Hverju var honum mögulega lofað?

„Stikkfrí korti“?

Og af hverju hefur enginn fjölmiðill talað við bankaráðsformann Landsbanka Íslands alla vikuna?

Og svo sagði Steingrímur Joð að það ætti bara að ausa.... í tölu við setningu Alþingis f. helgi !

Viðskrifarinn (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband