Lilló, Sturla Þór og Ukulele

Ofurbarnið Sturla Þór Traustason var um daginn í fyrstu yfir-nótt pössuninni hjá okkur ömmu. Það gekk vonum framar og gafst tími til að þjálfa piltinn í Ukulele spili. Á myndinni er hann að æfa sviðsframkomu, svona í leiðinni. Árangurinn frábær auðvitað.

Lillo, Stulli og Ukulele


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Fallegt barn, og unglegur afi

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.6.2008 kl. 01:16

2 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Takk fyrir það, hvoru tveggja.

Friðrik Þór Guðmundsson, 17.6.2008 kl. 01:17

3 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Fleiri myndir á roggur.blog.is.

Friðrik Þór Guðmundsson, 17.6.2008 kl. 01:20

4 Smámynd: Beturvitringur

Ekki ert þetta þú, ha?  Gerði ráð fyrir að þetta væri t.d. pabbinn eða stóri bróðir. Geturðu brosað og allt? Ekki datt mér í hug að þú gætir verið svona ljúfur á svip. Svona blekkja myndir; ljúflingur,- fýlulegur á mynd.

Stúfur er flottastur - og brosir m.a.s. með augunum.

Beturvitringur, 17.6.2008 kl. 01:40

5 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Þegar Stubburinn er annars vegar þá er ekki hægt að fjarlægja brosið - ekki einu sinni þótt skurðlæknar yrðu kallaðir til.

Þegar höfundarmyndin var tekin var Stubburinn augljóslega ekki nærstaddur. Og ég að reyna að sýnast ábyrgur og alvarlegur en ekki fýlulegur. Ég er ekki leikari.

Friðrik Þór Guðmundsson, 17.6.2008 kl. 01:49

6 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Mér skilst að það sé eitthvað alveg sérstak þegar maður nær þeim áfanga að verða amma/afi.

Til hamingju 

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 17.6.2008 kl. 01:52

7 Smámynd: Beturvitringur

Nýtt álit: Litli Stubbur og afa Stubbur = flottastir :)

Beturvitringur, 17.6.2008 kl. 02:11

8 Smámynd: Egill Óskarsson

Mér finnst eins og drengurinn sé að fara að taka Pete Townsend á þetta og berja Ukulele-inu í gólfið. Menn fá nottla ekki flottari sviðsframkomu en það.

Egill Óskarsson, 17.6.2008 kl. 04:34

9 identicon

þvílíkur afastrákur

sandkassi (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 04:37

10 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Hann tekur stundum Townsend-legar sveiflur þegar myndavélin er nærri. En hann náði því nú samt strax að það á að "plokka" strenginga og syngja með. Ukulele-ið er enda enn óbrotið. Svo er hann í orgelþjálfun. Tónlist er mjög mikilvæg næring fyrir sálina (en notabene kannski ekki tímabært fyrir drenginn að eiga Keith Moon sér að fyrirmynd, Gunnar).

Já, Alma, barnabarn er nokkuð alveg sérstakt get ég lofað þér. Ekki er verra að fylgjast með hversu barngóð sjálfur sonurinn er og yndisleg tengdadóttirin. Afa- og ömmudómurinn er auðvitað pís-of-keik við hliðina á foreldradómi.

Friðrik Þór Guðmundsson, 17.6.2008 kl. 10:59

11 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Ætlaði að bæta við smá fróðleik um hausamyndirnar í bakgrunninum. Ég er sem sagt ættrækinn maður og myndirnar á veggnum eru af öfum og ömmum og langöfum og -ömmum mínum. Við mína vinstri öxl í kringlóttum ramma er móðuramma mín, (Kristrún) Jóna Jónsdóttir, sem ég því miður kynntist aldrei af því að hún dó aðeins 52ja ára eða á svipuðum aldri og ég er nú. En þarna fylgist hún þó vandlega með afkomendum sínum. Lengst til hægri sést Guðmundur Guðlaugsson, pabbi móðurafa míns, en Guðmundur var Sunnlendingur sem fluttist til Reykjavíkur og var "ekill" hjá heildverslun Garðars Gíslasonar, einn af þeim síðustu sem ók um bæinn í hestavagni, áður en bensínfákarnir tóku öll völd. Ég á myndir af 7 af 8 langöfum og -ömmum og er ánægður með það daglega ættarmót.

Friðrik Þór Guðmundsson, 17.6.2008 kl. 11:36

12 identicon

Já þetta algjör Townsend, æj það er nú ekkert sem jafnast á við þennann bransa, allt annað verður léttvægt í samanburði. Nú þarf ég að fara að kíkja á bleyjuna á minni litlu sem verður 2ja 1. júlí. Hún er farinn að grípa í svona mini conga trommur sem eiga að vera upp á punnt í stofunni, algjört æði

sandkassi (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 17:46

13 Smámynd: Kolgrima

Þið eruð krútt

Kolgrima, 18.6.2008 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband