Tryggjum glæstan sigur lýðræðisins!

Það gleður þennan frambjóðanda (nr. 7814) óendanlega að svo er að sjá að kosningaþátttakan í kosningunum til Stjórnlagaþings sé að stigmagnast og geti orðið svipuð og í öðrum kosningum. Niðurrifsraddir, undir stjórn sérhagsmunaafla, hafa markvisst reynt að ljúga því að kjósendum að það sé flókið, erfitt og tilgangslaust að kjósa í þessum kosningum, en það er auðvitað leið og ljót lygi.

Staðreyndin er sú að það er auðvelt og ánægjulegt að kjósa í þessum kosningum. Einna erfiðast er að velja alla 25 sem kjósa má og forðast fulltrúa sérhagsmunaafla, en um leið og kjósandinn hefur fundið þó ekki væri nema eitt nafn þá er hann tilbúinn. Tvö til fimm nöfn betra, tíu til fimmtán enn betra og alla 25 auðvitað langbest, en ekki nauðsynlegt. Og að forgangsraða er ekki mikið meira verk en að velja hvaða bragð þú vilt hafa á ísnum þínum. Bentu á þann sem þér þykir bestur. Og svo koll af kolli.

Þessi hér frambjóðandi, nr. 7814, vill meina að hann sé meðal bestu kostanna, ef kjósandinn vill aukið beint lýðræði með persónukjöri og þjóðaratkvæðagreiðslum og með skýrri aðgreiningu löggjafarvalds og framkvæmdavalds (þings og ríkisstjórnar), vill þjóðareign auðlinda, áframhaldandi þingræði (en ekki forsetaræði), vill jafnt atkvæðavægi, vill faglega skipan dómara, vill aðskilnað ríkis og kirkju, vill stjórnlagadómstól og sterkar eftirlitsstofnanir og vill ótvíræðan rétt alþýðu manna til velferðar og mannsæmandi lífs.

Sjá:

Stefna frambjóðanda 7814 í 84 sekúndna hnotskurn

Myndbandskynning frambjóðandans

Útvarpsviðtal frambjóðandans

 

Góða skemmtun á morgun - það verður beinlínis gaman að kjósa!

 

kv.

Friðrik Þór Guðmundsson

frambjóðandi nr. 7814

lillokristin@simnet.is

s: 864 6365


mbl.is Tæplega 10 þúsund hafa kosið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með framboð þitt. Þú ert skýr og fylginn þér og þá eiginleika þurfum við. Þú færð mitt atkvæði.

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 22:33

2 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Takk fyrir það Gylfi, ég met það mikils. Ég óska öllum frambjóðendum og kjósendum góðs gengis á morgun, kjördag.

kv.

7814

Friðrik Þór Guðmundsson, 26.11.2010 kl. 22:51

3 Smámynd: Gunnar Waage

Ég ætla að kjósa þig lillo, vona þú komist inn.

Gunnar Waage, 27.11.2010 kl. 04:47

4 Smámynd: Bernharð Hjaltalín

Sæll gangi þér vel, ég er búin að kjósa vona að sem flestir kjósi við þurfum nýtt Ísland.

Bernharð Hjaltalín, 27.11.2010 kl. 09:00

5 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Takk Gunnar og Bernharð - Nýja Ísland hér komum við!

Friðrik Þór Guðmundsson, 27.11.2010 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband